BLUETTI EP2000 fyrir stærri heimili, fyrirtæki og stofnanir,
Vertu með fullt rafmagn þegar aðrir sitja í myrkri.
EP2000 er orkukerfi sem hægt er að hlaða frá veitu, rafstöð eða sólarorku.
Kerfin eru samsett af EP2000 áriðlum, HV800 stýringu og B700 rafhlöðum alls <155kWst. (21xB700)
Ath.: Einungis löggiltir rafvirkjar mega tengja búnaðinn og ganga frá vartöflu.
Verð frá kr. 1.472.900,- m vsk, (sjá verðskrá neðst á síðunni).
Fáðu tilboð í þína uppsetningu / 3 - 6 vikna afgreiðslufrestur.
EP2000 kerfin henta fyrir stærri heimili, lítil og meðalstór fyrirtæki, stofnanir og til sveita þar sem kerfin geta knúið heimili og fjós.
Búið er að setja upp kerfi í kúabúi að Grund í Eyjafirði, sem hefur reynst frábærlega. Nánar um það hér og hér
Bluetti orkukerfið tekur við á sekúntubroti (10 millisek) verði rafmagnslaust og tryggir að ekki verði straumrof hjá neytendum.
Við gerum þér tilboð í Bluetti orkukerfið ásamt áætluðum afhendingartíma (venjuleg 3-6 vikur).
Kynntu þér einnig lausnir okkar í sólarsellum og rafstöðvum ;)
Við erum síðan með rafvirkjameistara á okkar snærum sem getur sett kerfið upp og tengt ef vill.
EP2000 býður upp á að raða saman allt að sjö rafhlöðum við hvern áriðil (turn), sem gefur afkastagetu allt að 20kW (3x6,6kW) og orkugeymslu að 50kWst.
Síðan er hægt að tengja 3 turneiningar saman og þannig þrefalda aflið eða 60kW (3x(3x6,6kW) og orkugeymslu að 150kWst.
Sjá nánar í töflu hér að neðan.
![]() |

* BLUETTI EP2000 er með IP65 vottun, sem gerir það ryk- og vatnsvarið.
* Til að tryggja öryggi og endingu notar EP2000 LiFePO4 rafhlöðu með 10 ára ábyrgð.
* BMS með Dual Core CPU og DSP tækni tryggir hámarks afköst og skilvirkni.
* Einfalt í uppsetningu og tekur ótrúlega lítið pláss.
* Tengingarkostnaður er hverfandi, tekur jafnan innan við 10 klst.
* Enginn viðhaldskostnaður. Punktur :)
* Getur einnig nýtt orku frá sólarsellum og rafstöðvum til upphleðslu.
* Stjórnun og eftirlit getur farið fram á skjá, í gegnum Bluetooth eða Wifi

Verðskrá
EP2000 + 2 x 700 rafhlöður kr. 1.187.900 án VSK
EP2000 + 3 x 700 rafhlöður kr. 1.533.900 án VSK
EP2000 + 4 x 700 rafhlöður kr. 1.879.900 án VSK
EP2000 + 5 x 700 rafhlöður kr. 2.225.900 án VSK
EP2000 + 6 x 700 rafhlöður Kr. 2.571.900 án VSK
EP2000 + 7 x 700 rafhlöður Kr. 2.917.900 án VSK
Ath. Inn í verðinu er einn EP2000 og HV800 og allur tengibúnaður.
Verðskrá er birt með fyrirvara um villur og verðbreytingar.
