Festingasett á þök

 

Uppsetningar sólarsella á þök eru oftast unnar með festingasetti fyrir báruþak.

Það er fljótandi rammakerfi sem boltað er niður í tréklæðningu og þakbita.

Boltarnir eru skrúfaðir í burðarvirki þaks og ganga síðan upp í gegnum hábáru með þéttihring, sem hertur er niður að járninu.

Ekkert átak er því á þakklæðningunni sjálfri, aðeins burðarvirki og engin hætta á leka.

 

Kerfið frá Van Der Valk, Hollandi, hefur reynst afskaplega vel við íslenskar aðstæður.

Frá þeim bjóðum við lausnir, sem henta vel íslenskri veðráttu.

 

Nánar um þaklausnir með því að smella hér.