Victron áriðlar 0,5 - 15kw

 

Áriðlar ásamt rafgeymum henta sem aflgjafi og varaafl fyrir jafnt stærri sem smærri notendur.

Hentugast er að nota búnaðinn fyrir 1 fasa og þá allt að 15kW.

Með þremur samtengdum áriðlum getur búnaðurinn þó einnig knúið 3ja fasa kerfi.

Minni kerfi nota gjarnan 12 eða 24V rafgeymaspennu en þau stærri 48V.

Victron Energy hafa verið leiðandi í þessari tækini í meira en 25 ár.

 

12V og 24V lausnir er algengar um borð í skipum, bátum, húsvögnum og -bílum ásamt minni sumarhúsum.

48V uppsetningar eru svo notaðar til að knýja stærri notendur s.s. heimili og fyrirtæki, 1 eða 3 fasar.

 

Áriðlar eins og MultiPlus, Quattro eða Easy Solar frá Victron Energy eru sniðnir fyrir þessa notkun.

Þá hleðst rafgeymabanki frá rafstöð, veitu eða sólarsellum og skiptir sjálfkrafa á milli aflgjafa eftir þörfum.

Minni gerðir áriðla s.s. Phoenix eru svo oft notaðar fyrir tölvur o.fl í bílum og bátum og tengjast þá jafnvel beint á startgeyma.

 

Kynntu þér allar gerðir áriðla Victron Energy með því að smella hér.

 

Kynntu þér einnig úrval okkar af rafgeymum og rafstöðvum  ;)