Pundmann 9,9L / 220V

 

Vatnshitari ætlaður í húsvagna, báta og veitingavagna með lágan vatnsþrýsting (0,5 - 3bar).

Elementið er aðeins 500W (2,3A) og því hægt að nota hann þar sem rafmagn er af skornum skammti.

Einnig er hægt að nýta heitt loft s.s. frá miðstöð í akstri til þess að hita vatnið.

Vatnið hitnar annars að 75°C á ca 60 mín.

Aukageta fæst svo með því að blása lofti í gegnum heitan hitarann sem þá virkar eins og miðstöð.

Efni: Rústfrítt stál. / Einangrun: frauðplast. / Þyngd: 8,66kg

 

Vörunr. 67071  Verð kr. 122.062,-