Vélahitarar 220V

 

Þeir vinsælustu ár eftir ár!


Afskaplega fyrirferðalitlir en öflugir mótorhitarar með 220V elementi og hringrásadælu  10L/mín.

Hitari hættir ef hiti í bakrennsli fer yfir 65°C, sem tryggir að vatnslás helst lokaður.

Hitari fer svo aftur í gang við 45°C.

Hitararnir eru eingöngu ætlaðir í kælikerfi bílvéla með frostlegi, sem smyr slitfleti.


 Spara eldsneyti og auka endingu véla, svo ekki sé minnst á þægindin.

Búnaðurinn tengist einfaldlega inn á kælikerfi aflvéla með því að rjúfa vatsnlögn á milli miðstöðvar og vélar og hitar upp vélina fyrir gangsetningu. Gott er að miða við að hitari sé tengdur í 20-40 mín.

Jafnframt er hægt er að fá mjög nett 16A tengilsett/hraðtengi, sem sett er í stuðara eða grill og gerir alla notkun þægilegri.

 

Hægt er að hafa hitarana í sambandi langtímum saman en til þess að spara rafmagn er einfaldast að tengja búnaðinn þegar vaknað er að morgni, með rafmagnsframlengingu t.d. í gegnum glugga, eða með tengilklukku (220V), sem tengir á fyrirfram ákveðnum tíma.
Mekanískar og stafrænar tengilklukkur fást m.a. í öllum byggingavöruverslunum, og svo með Bluetooth fyrir síma eða nettentingu, t.d. í  >ELKO<.

 

 * Tryggja þarf að ekki geti myndast lofttappi í hiturunum og skal kælikerfið tryggilega lofttæmt.

 * Hitari skal staðsettur neðar en forðabúr kælivökva.

 * Tengistútar snúi upp eða 45° frá því, aldrei niður

 * Lesið leiðbeiningar vel til þess að tryggja vandræðalausa notkun.

 

P1-1000W  Fyrir vélar að 1,3L  Kr. 32.900,-    Uppselt.
P3-2000W  Fyrir vélar 1,3 - 2,5L  Kr. 35.350,- 
P3-2500W  Fyrir vélar yfir 2,5L  Kr. 37.250,- 
Tengilsett 16A  Vatnsþétt hraðtengi  Kr.   8.750,- 
     

 

  > Vanti körfuhnapp er vara uppseld í vefverslun.<