Öflugir segulrofar frá Blue Sea Systems, sem oft eru notaðir sem höfuðrofar eða tenging á milli rafkerfa.
Einnig henta þeir sem fjarstýring á orkufreka notendur s.s. rafmótora, áriðla og fl.
Þeir eru púlsvirkir, þ.e. taka ekki straum nema þegar gefinn er púls til þess að tengja/aftengja.
Hægt er að fá þá straumvirka ML500/A, sem tengja og halda við stöðuga straumtöku en aftengja annars.
ML500 henta jafnt í bifreiðar, vinnuvélar, skip og báta, IP66.
Tengiboltar eru 10mm og silfurhúðaðir fyrir hámarks leiðni og lágmarks tæringu.
Segulrofarnir seljast einir sér eða í setti ásamt tvívirkum rofa 2145.
Straumþol: 500A (100%) - 700A (5mín) - 1450A (30sek)
Nánari upplýsingar: 7701-12V / 7703-24V
| 7701 | ML500/B 12V án rofa | kr. 45.750,- |
| 7701/1 | ML500/B 12V ásamt rofa | kr. 53.420,- |
| 7703 | ML500/B 24V án rofa | kr. 45.750,- |
| 7703/1 | ML500/B ásamt rofa | kr. 53.420,- |

