BMS rafgeymastýringar

  

 

 BMS stendur fyrir "Battery Management System" og er hlutverk stýringanna að stjórna út- og innstreyma rafmangs til rafgeyma, einkum Lithium (s.s. LIFePO4) rafgeyma. 

 Lithium rafgeymar hafa litla innri mótstöðu sem þýðir að straumur rafmagns er nánast óheftur, sem getur valdið skemmdum / ofhitnun á rafgeymum og hleðslubúnaði s.s. rofum, lögnum og alternator. Búnaðurinn getur minnkað hitamyndun með því að takmara straumflæði í rafkerfi.

 BMS-Smart er svo með upplýsingagjöf og stillimöguleika sem oft er hægt að nýta með stafrænni stillingu, VE Bus eða bluetooth aðgengi.  

 Þannig rafgeymasett er eingöngu hægt að hlaða með smart-charge rafgeymahleðslu  með Lithium valstillingu s.s. IP65.   

 Sumir rafgeymar eru með BMS innbyggt og heita þá oft "-Pack" eða "Smart" s.s. Lithium Smart eða Lithium SuperPack frá Victron Energy.

 

----------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

Small BMS   kr. 10.540,- 

 

Einföld og ódýr stýring án VE.Bus og því ekki hægt að nota við stærstu gerðir áriðla en nýtist ágætlega til hleðslu Lithium rafgeyma s.s frá sólarsellum, hleðslustöð eða alternator en notar þá gjarnar Cyrix Li 120A eða 230A hleðsludeila fyrir hleðslustraum. 

 

Sækja upplýsingar á pdf.

 

 --------------------------------------------------------------------------------------------------------------

 

BMS VE.BUS   kr. 27.650,-

 

 Stýring sem verndar og hleður hverja sellu í Victron lithium-iron-phosphate (LiFePO4 eða LFP) rafgeymi en þær þarf að vernda gagnvart háspennu, lágspennu og fyrir ofhitnun. LFP rafgeymar sem tengjast BMS VE.Bus eru því með sjálfvirka spennujöfnun og hitastýringu.  

  Stýringin notast gjarnan með hleðsludeili Cyrix-Li-ct og battery protect 65 - 200A.

 BMS VE.BUS hentar við stærri gerðir áriðla og rafkerfi sem tengist upplýsingaskjá og vefþjóni.

 

Sækja upplýsingar á pdf

 

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- 

 

Smart CL 12-100   kr. 37.900,- 
Smart CL 12-200  kr. 49.650,-

 

Sérhannaðar Smart stýringar fyrir 12V rafkerfi með 12V alternator og Lithium Smart neyslu-rafgeyma i bílum og bátum. Stýringarnar tengjast rafgeymi og lesa og stjórna hverri sellu innan rafgeymisins. Þær minnka álag, inn- og/eða útstreymi eftir stöðu rafgeymis. Þær bregðast því við háspennu, lágspennu og hita rafgeymis. Alternator-tengi á stýringu er einstreymis tengi og stýranlegt hvað varðar straum og spennu inn á rafgeymi. Kerfið getur því tengst öllum gerðum startrafgeyma og alternatora. Eftirlit og stillingar gerast í gegnum VE.Bus og/eða Bluetooth.

 

CL Smart 100 upplýsingar á pdf   

Smart BMS 12/200 upplýsingar á pdf

 

----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- 

 

Lynx Smart BMS 500  kr. 182.900,-  

 

Sérhönnuð stýring til notkunar samhliða Victron Lithium Smart rafgeymum.    

Hægt er að nota aðrar stýringar við þá rafgeyma en Lynx stýringin býður upp á mun fleirri kosti og heildar lausnir.    

Lynx Smart BMS er einnig hluti Lynx línunar frá Victron Energy og fellur því vel að henni. 

 

Helstu kostir Lynx Smart BMS  eru: 

 

  • Innbyggður 500A tengi/rofi, sem nýtist sem útsláttaröryggi og mögulega sem fjarstýrður höfuðrofi.
  • Battery monitor, sem upplýsir um spennu og hlutfallsstöðu rafgeyma o.fl.
  • Viðvörun vegna væntanlegs neyðarrofs vegna t.d. lágrar stöðu rafgeymasellu.
  • Bluetooth til notkunar með VictronConnect App, við uppsetningu og eftirlit.
  • Eftirlit og net-fjarstýring með Victron GX búnaði, s.s. Cerbo GX

 

           Sækja frekari upplýsingar á pdf