MultiPlus II 3 - 15KVA

 

Multiplus II er allt í senn áriðill, hleðslustöð og orkumiðlun frá veitu, rafstöð og rafgeymum.

Hægt er að fá búnaðinn í mörgum stærðum eða allt að 15kW í 48VDC.

Multiplus II getur því knúið húsvagna, sumarhús, íbúðarhús og fyrirtæki.

Oftast er kerfið notað á 1fasa lausnir en með 3 einingum er hægt að samkeyra inn á 3ja fasa kerfi.

 

Oftast er búnaðurinn tengdur veitukerfi, sem þá keyrir rafbúnað og hleður og viðheldur rafgeymasetti.

Um leið og veita dettur út tekur kerfið við og keyrir notanda þar til veita kemur aftur inn.

Stærð rafgeymabanka ákveður síðan hversu lengi kerfið getur knúið notendur þegar veita dettur út.

Fyrir meira þol er hægt að stækka rafgeymabanka eða bæta við rafstöð sem getur þá í raun keyrt kerfið endalaust.

 

Með því að bæta við GX búnaði s.s. Ekrano eða Cerbo er sv hægt að tengjast kerfinu á staðnum eða í gegnum net um allan heim.

Til þess þarf netbeinir að vera á staðnum en allur aðgangur og uppsetning kerfa er ókeypis í gegnum VE VRM-portal.

Til þess að nota Bluetooth á uppsetningarstað þarf einungis VE.Bus Smart dongle, sem viðbót.

 

 

Kynnið ykkur mismunandi gerðir Multiplus

 

Til þess að fá verð eða tilboð í ykkar Multplus eða kerfi verið í sambandi við verslun.