Hátækni hleðslustöð frá Victron Energy fyrir rafbíla, 220V +solar
Notar hvort sem er 3 eða 1 fasa og sólarorku ef hún er til staðar
EV-NS frá Victron getur nefnilega forgangsraðað orku frá sólarsellum beint í tengið.
Stöðin hentar þvi einstaklega vel til heimahleðslu og í sumarhúsið.
Afköst í 1 fasa tengingu er að hámarki 7,3kW m 22kW með 3 fösum.
Stillingar og eftirlit fara í gegnum Wifi og/eða Bluetooth með VictronConnect App.
Ljósahringur um tengið segir til um stöðu, framgang og þegar rafhlaða er full hlaðin.
Hægt er að breyta virkni ljósahringsin að óskum hvers og eins í gegnum Wifi / Bluetooth.
Einnig er hægt að velja á milli 3ja prógramma:
1 Manual mode: Þú ræsir hleðslu og ákveður hvernig hún fer fram
2 Automatic mode: Búnaðurinn hámarkar nýtingu orku frá sólarsellum
3 Scheduled mode: Þú tímasetur hleðslu s.s. á nóttunni þegar rafmagn er oft ódýrara
EV-NS búnaðinn er hægt að samtengja öðrum búnaði Victron Energy í gegnum GX og/eða VRM portal
Framhlið kemur blá frá framleiðanda en einnig hægt að fá hana í hvítu eða svörtu.

