Vönduð salerni sem losa í sér tanka í húsbílum og vögnum. Tankarnir eru þá staðsettir í undirvagni og losaðir með því að opna loku sem tæmir tank í þar til gerða brunna.
Salernin eru afskaplega falleg og stílhrein og mjög auðveld í uppsetningu.
Sturtað er niður frá vatnskerfi húsvagns og opnað niður í tank með ástigs-spjaldloku.
Salernin fást í tveimur hæðum, 35,7 og 45,4sm, breidd 41,5 og dýpt 51,3sm. Tengistútar eru síðan valdir eftir því sem hentar.
Hátt (á gólf) ca kr. 110 þús / sérpöntun
Lágt (á 10 sm upphækkun) ca kr. 95 þús / sérpöntun