Separett Tiny þurrsalerni

 

Einstök vara sem hlaut hönnunarverðlaun EU 2021.

 

Separett Tiny er þurrsalerni sem er sérhannað fyrir lítil hús, ferðavagna, báta og skála.

Eingöngu þarf að tengja salernið rafmagni (12V eða 220V) og 50mm loftunarröri.

 

Salernið aðskilur saur og þvag, sem er mjög áríðandi varðandi niðurbrot og lykt.

Saur fer í pokaklæddan stamp en þvag annað hvort í brúsa eða í slöngu út úr rýminu.

 

Innbyggð vifta sér um að halda rými lyktarlausu og þurrkar saur.

Hann er síðan urðaður eða hent með rusli smbr. hundasaur.

 

Verð frá kr. 202.950,-