Alvöru lúga frá Carbest.
Loftun, kæling og sjálfvirk hitastilling með termostati.
Þegar ytri hjálmurinn er opinn getur ferskt loft streymt óhindrað inn og mettað loft út.
Þegar hjálmurinn er lokaður er það vifta sem sér um loftstreymi inn og út.
Termostat og hraðstillir í lúguramma.
Hjálmur fæst svartur eða reyklitur og innri rammi grár með lýsingu í skjá.
Gatmál 400 x 400 / utanmál 593 x 450
Verð kr. 79.900,-

