Verslunin okkar er að Bæjarlind 6, Kópavogi, í sama húsi og skemmtistaðurinn Spot og Ríta kvenfataverslun, sjá hér.
Við sérhæfum okkur m.a. í rafbúnaði fyrir fagmenn, hitalausnum, húsvagnavörum og grænni orku.
Opnunartími virka daga frá 9:00 - 12:00 og 13:00 - 17:00 nema föstudaga er lokað kl. 16:00.
Ef þú vilt hafa samband, hringdu í síma 5554900, eða sendu okkur fyrirspurn í tölvupósti, rotor@rotor.is.
Við höfum lagt niður viðgerðar- og þjónustuverkstæði okkar fyrir almenning en bjóðum áfram upp á ísetningar á ýmsum aukahlutum í samstarfi við þjónustuaðila um allt land.
RVR ehf, Steinhellu 17b, Hafnarfirði, sér um tjónaviðgerðir, ísetningu á rafgrunnum og rafbúnaði ásamt uppsetninga á markísum og þjónustu við pallhýsi frá Tischer.