10.4.2024

 

 Blue Sea Systems - lagerstaða

 

Við erum jafnt og þétt að fá meira af vörunum frá Blue Sea systems.

Höfuðrofar, öryggjahús, hleðsludeilar, tengiskinnur, segulrofar og smáraofar er komið í hús.

Bátarofarnir (Contura) eru væntanlegir, en einhverjar vikur þó.

Það er dálítið skrítin tilfinning fyrir nörd eins og mig að handleika vörurnar þeirra.

Öll hönnun og frágangur er algjörlega óviðjafnalegur.

Ég - búinn að vera í rafmagni í 40 ár - fyllist hreinlega lotningu  ;)

.. gaman í vinnunni :)